
Landsliðsmaðurinn, Janus Daði Smárason gat ekki leikið með íslenska landsliðinu í tveimur vináttulandsleikjum gegn Svíþjóð um miðjan mars mánuð. Janus Daði er enn að glíma við meiðsli á öxl sem hann varð fyrir í bronsleiknum gegn Króatíu á Evrópumótinu en þrátt fyrir að hafa byrjað að leika aftur með ungverska félagsliði sínu, Pick Szeged í febrúar þá kom bakslag í meiðslin. Janus Daði sagði í samtali við Handkastið að hann stefndi á að geta leikið með Pick Szeged í fyrstu umferð útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar sem hefst í byrjun febrúar. Pick Szeged mætir Kielce í fyrri leik liðanna 2.apríl næstkomandi. Liðin mætast síðan í Póllandi viku síðar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.