Vinstri hornamaðurinn í liði Fjölnis hann Viktor Berg Grétarsson hefur ekki verið í hóp hjá Fjölni í síðustu 2 leikjum á móti Stjörnunni. Handkastið fór á stúfana og fékk það staðfest frá Viktori Berg að hann verður ekki með í oddaleiknum og heldur ekki ef Fjölnir fer í úrslitaeinvígið í umspilinu. "Tímabilinu er lokið. Er með rifinn liðþófa. Bíð eftir myndatöku" sagði Viktor Berg. Handkastið sendir bestu batakveðjur á Viktor Berg Grétarsson.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.