Tveir leikir fóru fram í útsláttarkeppni Meistardeildar Evrópu í kvöld þegar Vesprém fengu PSG í heimsókn og Nantes unnu GOG í algjörum spennutrylli. One Veszprém - PSG 32-24 (15-9) Liðin munu svo mætast öðru sinni 9. apríl og sigurvegarinn úr einvíginu mætir Fucshe Berlin í 8-liða úrslitunum. GOG - HBC Nantes 33-34 (19-16) Liðin mætast svo aftur 8. apríl en sigurvegarinn úr einvíginu mætir Barca í 8-liða úrslitunum.
Veszprém unnu nokkuð þægilegan sigur á PSG í fyrri leik liðanna um sæti í 8-liða úrslitum keppninnar. Hugo Descat var allt í öllu hjá ungverska liðinu með 10 mörk og Kamil Syprzak var atkvæðamestur hjá PSG með 8 mörk.
HBC Nantes stálu fyrirsögnunum eftir ótrúlegar lokamínútur en liðið var 33-31 undir þegar mínúta var eftir af leiknum og GOG voru með boltann. GOG tapar boltanum tvívegis á lokakaflanum og Aymeric Minne skoraði á síðustu sekúndu leiksins til þess að innsigla 34-33 sigur. Frederik Bjerre var markahæstur í liði GOG með 11 mörk og Nicolas Tournat og Julien Bos skorðu 7 mörk hvor fyrir Nantes.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.