
Úrslitakeppnin í Svíþjóð karla megin fór af stað í kvöld með tveimur leikjum. Birgir Steinn Jónsson og liðsfélagar hans í Sävehof fóru gríðarlega vel af stað þegar þeir unnu frábæran útisigur á Hammarby í Stokkhólmi. Hammarby endaði deildarkeppnina í þriðja sæti og voru lengi vel í baráttu um deildarmeistaratitilinn á meðan Sävehof átti nokkuð upp og niður deildarkeppni og enduðu í sjötta sætinu. En það er ekki að spyrja að því þegar komið er í úrslitakeppni. Sävehof spilaði mjög vel í kvöld og vann flottan sigur, 26-28. Birgir Steinn var maður leiksins samkvæmt einkunnagjöf sænsku deildarinnar en hann skoraði sjö mörk úr átta skotum og fékk að auki eina brottvísun. Í hinum leik kvöldsins unnu Skövde tveggja marka heimasigur á Alingsås en þar eru liðin sem enduðu í fjórða og fimmta sæti deildarinnar að mætast. Úrslit kvöldsins: Hammarby 26-28 Sävehof Skövde 25-23 Alingsås

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.