Annar stórsigur Stjörnunnar og þær komnar í úrslitaeinvígi umspilsins
Sævar Jónasson)

Í kvöld mættust FH og Stjarnan í öðrum leik í undanúrslitum umspils um Olís deildar sæti. Leikið var í Kaplakrika.

Fyrri leikinn vann Stjarnan mjög svo sannfærandi.

Stjarnan byrjaði leikinn gríðarlega sterkt og komust í 1-5. Frekar lítið var skorað í fyrri hálfleik og voru Stjörnu stelpur alltaf yfir með 4-6 mörkum yfir lengst af. FH stelpur hafa staðið sig vel í vetur í Grill 66 deildinni og sýnt stöðugar framfarir en getumunurinn á milli þessara liða er einfaldlega of mikill. Staðan í hálfleik var svo 7-14 fyrir Stjörnunni.

Í seinni hálfleik héldu yfirburðirnir áfram. Eftir 10 mínútur var staðan orðin 11-21. Á 50 mínútu var staðan 17-28. Lokatölur urðu síðan 21-35. Stjarnan endaði tímabilið mjög vel í Olís deildinni og það er ljóst að þær hafa tekið þær frammistöður með sér inn í þetta einvígi. Holningin á liðinu lítur einfaldlega mjög vel út. Það er ljóst að þær ætla sér í úrslitaeinvígi umspilsins til að vinna það og halda sér áfram upp í Olís deildinni.

Hjá Stjörnunni var Inga Maria Roysdóttir markahæst með 10 mörk. Hrafnhildur og Margrét vörðu samtals 14 skot.

Hjá FH var Sonja Szöke með 9 bolta varða. Katrín Ósk Ástþórsdóttir var markahæst með 6 mörk.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top