Í kvöld mættust Víkingur og Grótta í undanúrslitum umspils um að komast upp í Olís deildina. Leikið var í Safamýri. Gróttu stelpur unnu afar sannfærandi 13 sigur í fyrsta leik. Gróttu stelpur byrjuðu af algjörum fítons krafti og voru strax komnar í 1-6 eftir rúmar 6 mínútur. Áfram hélt þetta á þessum nótum út fyrri hálfleikinn. Þónokkur getumunur var á milli liðanna og Grótta leiddi alltaf með á bilinu 3-6 mörkum. Hálfleikstölur voru 10-14 fyrir Gróttu. Í seinni hálfleik átti Grótta fljúgandi start og voru komnar 7 mörkum yfir eftir rúmar 5 mínútur. Eftir þetta náði Víkingur aldrei að ógna Gróttu að neinu ráði og voru aldrei líklegar. Voru þær líklega búnar að játa sig sigraða. Mest fóru Gróttu stelpur 10 mörkum yfir í stöðunni 15-25. Fór það svo að lokum að Grótta vann 22-28 og eru því komnar í úrslitaeinvígið í umspilinu um að komast upp í Olís deildina. Mæta þær þá Stjörnunni. En þetta einvígi unnu þær með samtals 19 mörkum í 2 leikjum. Svo sannarlega sannfærandi frammistaða hjá þeim. Hjá Víking var Valgerður Elín Snorradóttir frábær og setti 10 mörk. Þyrí Erla og Klaudia vörðu samtals 10 skot. Hjá Gróttu var Katrín Scheving markahæst með 8 mörk. Markmenn Gróttu vörðu samtals 10 bolta.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.