
Í kvöld mættust Fram og ÍR í úrslitakeppni Olís deildar kvenna. Leikið var í Lambhagahöllinni. Fyrri leik liðanna vann Fram 27-31. Gátu þær tryggt sér sigur í einvíginu með sigri í kvöld. Fyrri hálfleikur var gríðarlega jafn lengi vel og var jafnt á öllum fyrstu 20 mínúturnar. Þá sigu Fram stúlkur aðeins fram úr og voru aðeins sterkari og klókari á lokasprett fyrri hálfleiks. Hálfleikstölur voru 15-13 fyrir Fram í hálfleik. Fram stelpur héldu áfram að vera sterkari aðilinn í upphafi seinni hálfleiks og voru komnar 5 mörkum yfir eftir rúmar 10 mínútur. ÍR stelpur náðu ekki þessum herslumun sem þurfti til að jafna leikinn og voru þær alltaf 3-4 mörkum undir. Fór það svo að Framarar sigldu heim sigri í leiknum sem og í einvíginu öllu. Lokatölur 29-25 fyrir Fram. Frábært hjá þeim að vinna sterkt ÍR lið í þessu einvígi og það 2-0. Hjá ÍR var Sara Dögg Hjaltadóttir markahæst með 9 mörk. Markvarslan skilaði þeim 10 boltum vörðum. Hjá Fram var Hulda Dagsdóttir með 9 mörk. Ethel Gyða varði 11 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.