Í kvöld mættust KA/Þór og Haukar í úrslitakeppninni í Olís deild kvenna. Norðanstúlkur mættu gríðarlega einbeittar og ákveðnar til leiks og byrjuðu leikinn mun betur. Eftir rúmar 12 mínútur voru þær komnar í 7-3. Næstu 10 mínútur eða svo voru þær áfram yfir og lengst af með 2-3 marka forskot. Þegar örfáar mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum náðu Hauka stelpur að jafna leikinn og komast svo yfir. Algjör kúvending á leiknum. Voru þær mun sterkari undir lok fyrri hálfleiks og leiddu 11-14 í hálfleik. Eftir nokkrar mínútur í seinni hálfleik voru Hauka stelpur komnir 6 mörkum yfir og staðan mjög álitleg fyrir þær. Áfram hélt þetta svona út seinni hálfleikinn og voru Hauka stelpur alltaf yfir með 4-6 mörkum. Var það ekki að hjálpa KA/Þór stelpum að þær fengu varla varðan bolta í leiknum. Sigldu Hauka stelpur að lokum öruggum og sanngjörnum sigri heim. Lokatölur 20-25 og sigra Haukar einvígið 2-0. Hjá KA/Þór var Susan Pettersen markahæst með 5 mörk úr 17 skotum. Markverðir KA/Þór fundu sig engan veginn í dag og klukkuðu aðeins 2 bolta. Hjá Haukum voru Embla Steindórs og Sonja Sigsteins markahæstar með 5 mörk hvor. Sara Sif og Elísa Helga vörðu báðar samtals 12 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.