Úrslitakeppni kvenna heldur áfram í kvöld með tveimur leikjum í 6-liða úrslitunum en Fram og Haukar standa vel að vígi eftir sigur í fyrstu umferðinni. KA/Þór fær Hauka í heimsókn í KA-heimilið í kvöld klukkan 18:00 en Haukar unnu fyrri leik liðanna 27-24 á laugardaginn. Rætt var um leik KA/Þórs í Handboltahöllinni í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans þar sem farið var yfir frammistöðu Susanne Pettersen sem skoraði sjö mörk í leiknum. ,,Susanne hún byrjaði fyrri hálfleikinn mjög vel og síðan byrjar hún seinni hálfleikinn stórkostlega. Síðan fannst mér draga af henni en hún var að höggva á hnútana á móti 6-0 vörninni," sagði Ásbjörn Friðriksson. ,,Mögulega hefði þær þurft meira frá Bergrósu í þessum árásum. Hún er að búa mikið til og stilla upp fyrir sína liðsfélaga," bætti Vignir Stefánsson við en Bergrós skoraði aðeins eitt mark í leiknum en fiskaði fjögur víti og gaf fjórar stoðsendingar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.