Handkastið greindi frá því á dögunum að Tumi Steinn Rúnarsson væri mögulega á heimleið eftir dvöl erlendis bæði í Þýskalandi og í Austurríki undanfarin ár. Tumi Steinn var þá orðaður mögulega við KA en í nýjasta þætti Handkastsins sagði Kristinn Björgúlfsson frá leigubílasögu sem hann hafði heyrt. ,,Við höfum rætt um það áður að Tumi Steinn væri mögulega á leið norður. Ég fékk bara skeytasendingar og hláturgas frá Akureyri þegar ég sagði að hann væri á leið þangað,” sagði Stymmi klippari í þættinum áður en Kristinn sagði frá leigubílasögunni. ,,Ég er með leigubílasögu varðandi það. Það að Tumi Steinn sé á leiðinni í KA er víst kjaftæði. Hann mun fara í Val og Dagur Árni Heimisson fer heim í KA. Maður hafði heyrt þær sögur, hvað sem er svosem til í því að Dagur Árni hafi næstum því verið farinn heim um áramótin. Hann hefur átt smá erfitt uppdráttar í Val, bæði meiðslalega séð og kannski ekki spilað eins og hann eða Valur vildi. Leigubílasagan er góð,” sagði Kiddi Bjé. Dagur Árni var keyptur til Vals frá KA í sumar á metfé en hann var einn eftirsóttasti leikmaður landsins í sumar þar sem meðal annars Afturelding reyndi að kaupa hann frá KA. Hann hefur hinsvegar verið að glíma við meiðsli meiri hluta tímabilsins og ekkert leikið með Val eftir áramót.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.