Franski landsliðsmaðurinn Elohim Prandi hefur verið orðaður við pólska stórliðið Wisła Płock samkvæmt nýlegum orðrómi í handboltaheiminum. Handboltasíðurnar RThandball og Upskill Handball greindu báðar frá því á Instagram að Prandi sé gæti gengið til liðs við Wisla Plock. Samkvæmt þeim upplýsingum snýst umræðan um að hann gæti gengið til liðs við félagið þegar samningur hans við Paris Saint-Germain rennur út árið 2028. Prandi hefur verið lykilmaður hjá PSG undanfarin ár. Hann hóf feril sinn hjá franska félaginu US Ivry, þar sem hann kom upp í gegnum unglingastarf félagsins og lék sína fyrstu leiki í meistaraflokki aðeins 17 ára gamall. Þaðan fór hann til USAM Nîmes Gard, þar sem hann sló í gegn og vakti athygli stærri félaga áður en hann gekk til liðs við PSG árið 2020. Síðan þá hefur hann unnið fjölda titla með Parísarliðinu og fest sig í sessi sem einn besti leikmaður í sinni stöðu, auk þess að vera fastamaður í franska landsliðinu. Wisla Plock hefur á undanförnum árum verið eitt sterkasta lið Póllands og virðist félagið halda áfram að horfa til stórra nafna á leikmannamarkaðnum. Prandi er enn einn leikmaðurinn sem er orðaður frá frönsku úrvalsdeildinni á næstu árum og hefur það vakið athygli erlendra sérfræðinga ef það verður raunin. Thibaud Briet leikmaður Nantes var á dögunum orðaður við Flensburg.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.