Guðjón Valur hafði betur í Íslendingaslagnum
Michael Hundt / AFP

Tveir leikir voru á dagskrá í dag er 27.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar gekk í garð.

Fyrsti leikur dagsins fór fram þegar Bergischer tók á móti lærisveinum Guðjóns Vals í Gummersbach sem komu í heimsókn. Gummersbach byrjuðu strax af krafti og voru snemma búnir að mynda sér gott forskot sem dugði út allan leikinn. Lokatölur urðu 30-39 er staðan var 15-19 í hálfleik. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Julian Köster með 8 mörk og 2 stoðsendingar.

Seinni leikur dagsins fór fram er Wetzlar bauð Stuttgart í heimsókn. Leikurinn var járn í járn frá fyrstu mínútu þar sem sóknarleikur beggja liða var góður. Úrslitin réðust á síðustu mínútunum er Wetzlar jöfnuðu þegar um 50 sekúndur lifðu leiks. Hvorugt liðið fann sigurmark og endaði leikurinn í jafntefli 31-31. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Lenny Rubin með 8 mörk og 1 stoðsendingu.

Úrslit dagsins:

Bergischer-Gummersbach 30-39

Wetzlar-Stuttgart 31-31

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top