Hafdís Shizuka Iura leggur skóna á hilluna
Emma Elísa Jónsdóttir)

Handknattleikskonan Hafdís Shizuka Iura hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Þetta tilkynnir hún á Instagram reikningi sínum. Hafdís er fædd 1994 og verður því 32 ára á árinu. Leikur hún yfirleitt í stöðu leikstjórnanda en getur leyst allar stöður fyrir utan.

Á Instagram reikningi sínum er hún með tilkynningu í léttum tón eins og henni einni er lagið.

"Þúsund og þrjár þakkir fyrir mig Handbolti. Enn eitt áfallið fyrir handboltasamfélagið en svona er gangur lífsins. Eftir æðisleg (svona í heild) 25 ár og mörgum vinum og óvinum seinna er kominn tími á eitthvað annað skemmtilegt"

Hafdís er uppalin í Fram og var lengi í herbúðum félagsins. Var hún einnig í yngri landsliðum Íslands lengi vel. Auk þess hefur hún leikið með Fylki, HK og Víking. Hjá Víking hefur hún verið síðan hún gekk í raðir liðsins vorið 2022 og spilað þar stórt og veigamikið hlutverk.

Meiðsli hafa sett strik í reikninginn á þessu tímabili hjá henni og er það stærsta ástæðan fyrir því að hún ákveður að leggja skóna á hilluna.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top