Meistaradeildin: Sporting og Pick Szeged í góðri stöðu fyrir síðari leikina
Javier Borrego / Spain DPPI / DPPI via AFP)

Tveir leikir fóru fram í útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Sporting fengu Wisla Plock í heimsókn og Pick Szeged unnu Kielce.

Sporting - Wisla Plock 33-29 (19-12)
Sporting unnu fjögurra marka sigur á Wisla Plock í fyrri leik liðanna. Orri Freyr Þorkelsson átti góðan leik fyrir Sporting og skoraði 6 mörk. Fransisco Costa var markahæstur fyrir Sporting með 10 mörk og Melvyn Richardsson og Przemyslaw Krajewski skoruðu fimm mörk hvor fyrir Wisla Plock.

Það eru svo Álaborg sem bíða sigurvegarans úr þessu einvígi í 8-liða úrslitunum.

Pick Szeged - Kielce 26-23 (11-11)
Pick Szeged unnu mjög góðan sigur á Kielce í fyrri leik liðana. Janus Daði Smárason var mættur aftur til leiks eftir meiðsli og skoraði 3 mörk. Lazar Kukic var markahæstur fyrir Szeged með 6 mörk og Piotr Adam Jarosiewicz var markahæstur fyrir Kielce með 6 mörk.

SC Magdeburg bíður sigurvegarans úr þessu einvígi í 8-liða úrslitunum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top