Skotklukkan tekin upp í Úkraínu
Lysberg Solum /AFP

Úkraínska handknattleikssambandið hefur ákveðið að innleiða 35 sekúndna skotklukku í deildarkeppnunum á þeirra vegu. Megin markmiðið er að hraða handbolta í Úkraínu.

Úkraínska handknattleikssambandið hefur staðfest að tekin verði upp 35 sekúndna skotklukka í keppnum á þeirra vegum. Með breytingunni er stefnt að því að hraða leiknum, draga úr svokölluðu „passive play“ og færa úkraínskan handbolta nær því sem þekkist hjá fremstu þjóðum Evrópu.

Samkvæmt upplýsingum frá sambandinu byggir ákvörðunin meðal annars á greiningu á leik Úkraínu á Evrópumótinu í janúar. Þar var meðaltími sókna Úkraínu um 37 sekúndur, sem er töluvert hægara en hjá toppliðum á borð við Danmörku og Frakkland, þar sem sóknir eru að jafnaði undir 33 sekúndum.

Með tilkomu skotklukkunnar verður sóknartími liðanna skýrari og leikurinn væntanlega kraftmeiri. Áhersla verður lögð á hraðari ákvarðanatöku og meira flæði í leiknum, sem gæti haft áhrif á bæði leikstíl liða og þróun leikmanna.

Ekki hefur verið tilkynnt nákvæmlega hvenær breytingin tekur gildi né hvort hún verður innleidd í öllum deildum strax, en ljóst er að þetta er stórt skref í átt að nútímavæðingu úkraínskrar handknattleiksmenningar. Áhugavert verður að fylgjast með hvernig þessi breyting mun hafa áhrif á leikinn og hvort fleiri þjóðir muni feta í svipuð spor á næstu árum.

En ekki er tekið fram hvernig reglurnar um skotklukkuna verður, hvort leiktíminn stoppi við fríkast eða hvort varnarliðið hagnist á því að brjóta á sóknarliðinu og fleiri atriði sem hægt er að velta fyrir sér með tilkomu skotklukku í handboltann.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top