

Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins Haukar - Afturelding (Fimmtudag 18:00) / Sigurvegari: Haukar Frábært einvígi sem við fáum alla leið í oddaleik. Haukar unnu fyrsta leikinn örugglega meðan Afturelding voru frábærir í síðasta leik og tryggðu sér oddaleik. Einar Baldvin þarf að eiga aðra eins frammistöðu í marki Aftureldingar ef þeir ætla að eiga möguleika í kvöld. Ég sé hins vegar leikmenn Hauka ekki eiga jafn slaka frammistöðu og á mánudaginn og Haukar munu tryggja sig áfram í undanúrslit í miklum baráttuleik. Spái þetta endi með 3-4 marka sigri Hauka.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.