Það verður skyldumæting fyrir alla Hafnfirðinga
Sævar Jónasson

Freyr Aronsson var besti leikmaður vallarins í átta marka sigri Hauka gegn Aftureldingu í oddaleik 8-liða úrslita Íslandsmótsins í kvöld sem Haukar unnu 32-24.

Freyr var í viðtali við Hörð Magnússon í Sjónvarpi Símans strax eftir leik.

,,Mér fannst við tilbúnir frá fyrstu mínútu. Afturelding er með gott lið og það er erfitt að mæta þeim. Þeir keyra á okkur endalaust. Ég er samt virkilega sáttur hvernig við höldum kraftinum allan leikinn og gerum þetta vel. Við kláruðum þetta eftir svona 45 mínútur," sagði Freyr.

Haukar töpuðu óvænt leik tvö eftir mikla yfirburði í leik eitt.

,,Við undirbjuggum okkur vel. Við klúðruðum mikið af færum í síðasta leik og við leyfðum okkur kannski að fara á eitthvað lægra plan eftir að við unnum stórt í fyrsta leik. Við þurfum að vera á tánum með það. Við megum ekki leyfa okkur að slaka of mikið á, þá verðum við drullu lélegir. Við þurfum að halda áfram á fullu og þá hef ég bullandi trú á þessu."

Nú er ljóst að Haukar mæta FH í undanúrslitum Íslandsmótsins.

,,Þetta verður geðveikt. Alveg eins og í bikarnum þá var fullt hús, þetta er eiginlega það skemmtilegasta sem maður gerir, Hafnarfjarðarslagurinn. Það verður skyldumæting fyrir alla Hafnfirðinga."

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top