

Stefán Árnason þjálfari Aftureldingar segir úrslitin á Ásvöllum í kvöld svekkjandi en liðið tapaði með átta mörkum 32-24 í oddaleik gegn Haukum í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. Þar með er ljóst að Afturelding er komið í sumarfrí eftir að liðið hafi endað í 6.sæti Olís-deildarinnar. Stefán var í viðtali við Hörð Magnússon í Sjónvarpi Símans eftir leikinn í kvöld. ,,Svekkjandi hvernig þetta spilaðist. Við vorum aðeins á eftir kannski allan leikinn og náum illa að stoppa þá. Freyr var frábær og það sem við höfum gert vel er að hlaupa vel til baka og láta þá stilla upp en þeir skora meira úr hraðaupphlaupum í dag. Síðan náðum við ekki sama þéttleika varnarlega eins og hefur verið. Hrós á Haukana hvernig þeir spiluðu. Það var erfitt að eiga við þá. Við erum að keppa við gífurlega gott lið. Það sem gerist er að það kemur kafli þar sem við aðeins köstum þessu frá okkur, bæði of mikið af brottvísunum og erum að missa boltann með engan í markinu og erum að klikka dauðafærum og allt í einu er þetta orðið sex mörk og þá er þetta orðið erfitt. Við hefðum þurft að byrja seinni hálfleikinn betur." GUNNI MAGG SENDI SÍNA FYRRUM LÆRISVEINA Í SUMARFRÍ Hörður bað Stefán um að gera upp tímabilið hjá Aftureldingu sem nú er á enda. ,,Við fórum illa að ráði okkar í síðustu umferðunum og hefðum getað endað í 2.-4. sæti með því að klára síðustu þrjá leikina. Við vorum í lykilstöðu til að ná heimavallarréttinum í lokin en við nýttum það ekki og auðvitað telur það að þurfa að fara í oddaleik á Ásvöllum í staðin fyrir að eiga hann heima. Aftur á móti erum við með nýtt lið, það voru lykil póstar sem fóru, bæði varnar og sóknarlega og við erum með marga unga stráka. Við lærum af þessu og við sýndum í vetur að við getum verið með frábært handboltalið og margir leikmenn hafa bætt sig ótrúlega mikið. Við hefðum þurft að gera aðeins betur eftir áramót og enda á betri stað en þetta er bara verkefni sem tekur smá tíma. Ég er sannfærður að það sem við vorum að leggja inn mun skila sér. Þetta er þung og erfið niðurstaða, þetta er svekkjandi. Við ætluðum okkur meira en ég er stoltur af liðinu."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.