Gunni Magg sendi sína fyrrum lærisveina í sumarfrí
Sævar Jónasson

Það var ekki mikil spenna í eina oddaleik 8-liða úrslita í Olís-deild karla þegar Haukar og Afturelding mættust á Ásvöllum í kvöld. Haukar unnu sannfærandi átta marka sigur 32-24 eftir að hafa verið 15-13 yfir í hálfleik.

Freyr Aronsson var stórkostlegur í liði Hauka og var markahæstur með XX mörk þar af XX úr vítum. Hergeir Grímsson skoraði fjögur mörk fyrir Hauka úr fjórum skotum og Skarphéðinn Ívar Einarsson skoraði einnig fjögur mörk.

Markvarslan var fín hjá Haukum en Aron Rafn Eðvarðsson varði sjö skot, 35% markvarsla og Grétar Ari Guðjónsson varði fjögur skot, 26% markvarsla.

Hjá Aftureldingu varði Einar Baldvin sex skot, þar af tvö víti með 18% markvörslu. Árni Bragi Eyjólfsson var markahæstur með fimm mörk og þeir Kristján Ottó Hjálmsson og Harri Halldórsson skoruðu fjögur mörk hvor.

Haukar náðu mest ellefu marka forystu í seinni hálfleik í stöðunni 30-19 og voru sterkari aðilinn lengst af í leiknum en ekki síst í seinni hálfleik þar sem Mosfellingar voru í miklum vandræðum sóknarlega.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top