
Við heyrðum aðeins í Signý Pálu Pálsdóttir markmanni Fjölnis í Grill66-deildinni og grennsluðumst aðeins fyrir það hvort eitthvað væri til í þeim orðrómi að hún væri að hætta í handbolta. Það stóð ekki á svörum hjá Signý Pálu. ,,Ég er mjög sátt við tímann minn í handboltanum. Ég hef æft handbolta frá því að ég var 8 ára með nokkrum hléum og hef síðan þá eignast margar góðar vinkonur og á margar skemmtilegar minningar frá þessum tíma í sportinu, bæði í Val, Gróttu, Víkingi, u-19 landsliðinu og nú síðast í Fjölni. Það eru kaflaskil hjá mér þar sem ég er að fara til London í meistaranám þannig að ég tel þetta góðan tímapunkt til að setja skóna endanlega á hilluna." Handkastið óskar Signý Pálu góðs gengis í London en vonar að hún muni snúa aftur milli stanganna þegar hún snýr aftur til Íslands eftir námið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.