
Handkastið greindi frá því fyrst allra fjölmiðla að Arnór Atlason aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands væri á blaði danska handknattleikssambandsins sem mögulegur kandídat í að verða næsti aðstoðarmaður Nikolaj Jacobsen með danska landsliðið. Arnór Atlason er líkt og Snorri Steinn að renna út af samningi hjá HSÍ en hann þjálfar TTH Holstebro í Danmörku. Rætt var um orðróminn í nýjasta þætti Handkastsins þar sem Einar Ingi Hrafnsson gestur þáttarins var spurður út hans fyrstu viðbrögð þegar hann heyrði af þessum möguleika. ,,Mín fyrstu viðbrögð voru þau að þetta gæti í raun ekki verið satt. Maður hefur alveg séð Danina fara í Gumma Gumm, Íslending sem aðalþjálfara en aðstoðar þjálfarastarf hjá svona stóru handboltaþjóð myndi ég alltaf halda að væri hjá dönskum aðila, að einhver danskur þjálfari kæmi inn í þennan skóla. Ég vona að hann haldi áfram að taka slaginn með Snorra og ég tel að þetta spili eitthvað inn í það að þetta sé að tefja samningaviðræðurnar við Snorra," sagði Einar Ingi áður en Arnar Daði Arnarsson bætti við: ,,Þetta er örugglega heldur ekkert þægilegt fyrir Arnór Atla að vera gera upp á milli þess að verða aðstoðarþjálfari hjá besta landsliði í heimi þar sem hann fer inn í verkefni þar sem kröfurnar eru að vinna allt og ef þú vinnur ekki þá er það skandall. Það er sennilega óþægilegt að koma inn fyrir einhvern aðila sem hefur verið þarna í 16 ár. Ef það gengur illa strax á fyrsta móti þá verða örugglega einhverjir sem benda á nýjan aðstoðarþjálfara. Á sama tíma hefur hann verið í þessu verkefni með Snorra í þrjú ár og það er tröppugangur upp á við.” Einar Ingi tók undir þau orð og bendir á að Nikolaj Jacobsen verður ekki endalaust í starfi sem þjálfari danska landsliðsins. ,,Ég held að þetta sé mjög erfitt, líka það að Nikolaj Jacobsen verður ekkert endalaust með danska landsliðið. Á einhverjum tímapunkti verður hann orðinn þreyttur á þessu og þá er alveg líklegt að það verði horft til aðstoðarþjálfarans, sérstaklega þegar það er verið að fá inn nýtt blóð."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.