
Eyjamaðurinn, Elmar Erlingsson skoraði fimm mörk fyrir Nordhorn-Lingen í fimm marka tapi liðsins á útivelli gegn VfL Lübeck-Schwartau í þýsku B-deildinni í gærkvöldi. Lokatölur 29-24 VfL Lübeck-Schwartau í vil en heimamenn voru þremur mörkum yfir í hálfleik 11-8. Nordhorn er í 6. sæti deildarinnar með 32 stig þegar átta umferðir eru eftir en VfL Lübeck-Schwartau er í 11.sæti deildarinnar. Elmar var markahæstur í liði Nordhorn-Lingen með fimm mörk en Einar Nickelsen var markahæstur heimamanna með átta mörk. Elmar og félagar hafa einungis unnið einn af síðustu fimm leikjum sínum í deildinni en eftir góðan sprett um miðbik tímabilsins hefur illa gengið í stigasöfnuninni og orðið ansi ólíklegt að liðið vinni sér sæti í þýsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Adam Thorstensen markvörður Stjörnunnar gengur í raðir VfL Lübeck-Schwartau í sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.