Erum að vinna með old school KA stemminguna sem allir muna eftir

Við heyrðum aðeins í Andra Snæ Stefánssyni aðalþjálfara KA liðsins sem nú á dögunum sigraði ÍBV 2-0 í algjörlega frábæru einvígi þessara landsbyggðarliða í 8 liða úrslitum.

Það halda margir að Andri sé borinn og barnfæddur Akureyringur en hann fæddist hins vegar í Reykjavík og bjó svo á Eiðum á Austfjörðum alveg fram á sumarið 1997 er hann flutti til Akureyrar 11 ára gamall og gerðist gallharður KA maður eins og öll föður ættin hans. Smá útúrdúr og fróðleiksmoli.

Við slógum á þráðinn til Andra sem var staddur í miðjum göngutúr með sonum sínum. Þá lögðum við fyrir Andra nokkrar spurningar um einvígið á móti ÍBV og einvígið á móti Val sem er framundan. Andri tók vel í það af sinni einskæru jákvæðni og glaðværð.

Til hamingju með að vera kominn í undanúrslit. Að vinna ÍBV 2-0 í frábæru landsbyggðareinvígi er býsna vel gert. Þú ert væntanlega stoltur af liðinu og framlagi þeirra í þessu einvígi?

Takk fyrir það. Já það var frábært að vinna þetta einvígi enda jafnir leikir og alvöru úrslitakeppnisbragur að spila í Eyjum og í KA-heimilinu. Ég er mjög stoltur af liðinu. ÍBV er með frábært lið og eru vel þjálfaðir ásamt því að vera ávallt erfiðir í úrslitakeppni. Mjög gaman að vinna fyrir framan okkar flottu stuðningsmenn í KA-heimilinu okkar. Nú er bara næsta verkefni að gíra sig í Valsmenn sem er mjög krefjandi dæmi þar sem þeir unnu deildina verðskuldað og eru öflugir.

Hvernig lýst þér á að fá Valsarana og hvernig meturðu möguleikana ykkar gegn þeim?

Það verður gaman að spila við Val. Þeir eru jú deildarmeistarar sem segir margt um stöðugleika þeirra í vetur. Þeir eru með marga öfluga leikmenn og spila hraðan bolta. Liðin unnu sitthvorn leikinn í deildinni og ég býst við jöfnum leikjum. Það getur allt gerst og ég tel okkur eiga möguleika en það er alveg klárt mál að þetta verður krefjandi verkefni. Ég er glaður að KA sé komið í undanúrslit í fyrsta skipti í mörg ár, við erum spenntir og veit að fólkið okkar mun taka þátt í þessu með okkur.

Þú talar um stuðningsmennina - þeir eru væntanlega ykkar 8. maður í baráttunni og þú treystir án efa á að það verði uppselt á ykkar heimaleik/heimaleikjum og að vallarkynnirinn biðji fólk um að þjappa inn að miðju eins og á árum áður?

Já það er búin að vera frábær mæting hjá okkar fólki í vetur og við erum mjög þakklátir fyrir það. Svona virkar KA, við stöndum saman og það gefur okkur mikið að hafa stuðning á vellinum. Þetta er miklu meira en handbolti hjá okkur og stjórnin er búin að setja upp flotta viðburði í kringum heimaleikina okkar. Við erum að vinna með old school KA stemninguna sem allir muna eftir. Svona á þetta að vera.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top