Hápunktar úr leikjum gærdagsins í Meistaradeildinni
Ruben De La Rosa / AFP

Tvö Íslendingalið voru í eldlínunni í Meistaradeild Evrópu þegar Pick Szeged tók á móti Kielce og Sporting tók á móti Wisla Plock.

Pick Szeged vann góðan sigur á Kielce í fyrri leik liðanna. Janus Daði Smárason var mættur aftur til leiks eftir meiðsli og skoraði 3 mörk. Lazar Kukic var markahæstur fyrir Szeged með 6 mörk og Piotr Adam Jarosiewicz var markahæstur fyrir Kielce með 6 mörk. 

Sporting vann fjögurra marka sigur á Wisla Plock í fyrri leik liðanna. Orri Freyr Þorkelsson átti góðan leik fyrir Sporting og skoraði 6 mörk. Fransisco Costa var markahæstur fyrir Sporting með 10 mörk og Melvyn Richardsson og Przemyslaw Krajewski skoruðu fimm mörk hvor fyrir Wisla Plock.

Sporting - Wisla Plock 33-29 (19-12)

Pick Szeged - Kielce 26-23 (11-11)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top