
Það var leikið í bæði Noregi og Svíþjóð í dag og í gær en í Noregi tryggðu Elverum sér deildarmeistaratitilinn á meðan Íslendingaliðin í Svíþjóð unnu sína leiki í úrslitakeppninni. Elverum tryggði sér deildarmeistaratitilinn í dag með sigri á útivelli gegn Kristiansand, lokatölur urðu 32-39. Tryggvi Þórisson komst ekki á blað fyrir gestina sem kláruðu titilinn þrátt fyrir að einni umferð sé ólokið. Þeir eru með sex stiga forskot á Kolstad og eru með 45 stig á meðan Kolstad er með 39 og geta mest náð 43 stigum. Fyrsti leikur deildarmeistara Kristianstad í úrslitakeppninni í Svíþjóð fór fram í dag en þeir mæta grönnum sínum í Karlskrona, Einar Bragi Aðalsteinsson var ekki með heimamönnum í dag en það kom ekki að sök því þeir unnu góðan sigur, 34-30. Arnór Viðarsson skoraði eitt mark úr tveimur skotum, gaf tvær stoðsendingar og fékk að auki eina brottvísun fyrir gestina sem eru núna lentir 1-0 undir í einvíginu en næsti leikur liðanna fer fram næstkomandi fimmtudag, 9.apríl. Sävehof komst í 2-0 forystu í einvígi sínu gegn Skuru í kvennadeildinni. Þær unnu nokkuð þægilegan sigur, 24-33 þar sem Elín Klara Þorkelsdóttir átti töluvert betri leik en í þeim fyrsta. Elín Klara skoraði sex mörk úr tíu skotum, þar af voru fjögur úr vítum. Skara er einnig komið í 2-0 forystu í sínu einvígi en þær sigruðu VästeråsIrsta á útivelli í dag, 27-30. Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði þrjú mörk úr fimm skotum og gaf eina stoðsendingu. Úrslitin: Kristiansand 32-39 Elverum Kristianstad 34-30 Karlskrona Skuru 24-33 Sävehof VästeråsIrsta 27-30 Skara

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.