

Rúnar Kárason leikmaður Fram gaf það út í vikunni að hann væri búinn að leggja handboltaskóna á hilluna á 38. aldursári. Í viðtali við Vísi á dögunum segir hann að ákvörðunina hafi hann tekið fyrir nokkrum mánuðum að láta staðar numið og ljúka leikmannaferlinum í vor, þó að tilkynningin hafi ekki verið gerð opinber fyrr en eftir tímabilið. Hinn 38 ára gamli Rúnar greindi frá ákvörðun sinni á samfélagsmiðlum í síðustu viku. Þó er ljóst að hann er ekki alveg hættur afskiptum að handboltanum, þar sem hann mun áfram gegna hlutverki rekstrarstjóra handknattleiksdeildar Fram og þá er hann í þjálfun hjá félaginu. „Ég verð áfram hérna sem rekstrarstjóri og þjálfari. Ég sagði það líka við strákana eftir síðasta leikinn að ég ætla ekkert að hverfa. Mér þykir mjög vænt um þennan hóp og vil áfram vinna með honum,“ sagði Rúnar í viðtali við Vísi og bætir við: „Eina breytingin verður að ég verð ekki skíthræddur á hverjum degi um að slíta eitthvað.“ „Ég leyfði þessu bara að malla í rólegheitunum í staðinn fyrir að gefa eitthvað út. Fyrir utan það að ég er ekki nægilega athyglissjúkur til þess að vilja fá einhvern kveðjutúr eða slíkt kjaftæði,“ sagði Rúnar léttur. Þrátt fyrir yfirvegaða ákvörðun viðurkennir hann að tímabilið hafi verið tilfinningaþrungið á köflum. Hann lítur til baka á langan og farsælan feril í meistaraflokki. „Maður hefur alveg orðið klökkur inn á milli, sitjandi einn með sjálfum sér í bílnum að hugsa um allt saman. Ég upplifi mig mjög lánsaman að ná 21 ári í meistaraflokki. Ég sleit krossband tvisvar sinnum þegar ég er 24 og 25 ára." Rúnar rifjar upp að meiðslin hefðu getað sett strik í reikninginn og jafnvel bundið enda á ferilinn mun fyrr. „Satt best að segja, þegar ég sleit krossband í annað sinn, var ég ekki viss um að ég myndi endast eitthvað. Ég hélt að klukkan mín væri komin langt á veg. Að ég sé enn skytta 38 ára í endalausum hamagangi að spila, ég er gríðarlega stoltur af því og þakklátur að þetta skyldi nú allt saman tolla saman,“ segir Rúnar. Rúnar lék í atvinnumennsku meðal annars með Fuchse Berlín, Bergischer, Grosswallstadt, Rhein-Neckar-Lowen og Hannover Burgdorf í Þýskalandi og í Danmörku með Ribe-Esbjerg. Hann kom síðan heim til Íslands sumarið 2021 og lék tvö tímabil með ÍBV. Þar varð hann Íslandsmeistari. Hann kláraði síðan leikmannaferilinn með uppeldisfélagi sínu Fram þar sem hann lék þrjú tímabil. Á öðru tímabilinu varð hann Íslands-og bikarmeistari með félaginu. Í ár féll liðið hinsvegar út í 8-liða úrslitum gegn FH 2-0 og reyndust það vera síðustu leikir Rúnars á ferlinum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.