Það verður engin kúvending á hugmyndafræðinni
Víkingur

Karlalið Víkings tryggði sér á dögunum sæti í Olís-deild karla eftir tveggja ára veru í Grill66-deildinni. Aðalsteinn Eyjólfsson tók við karlaliði Víkings fyrir síðustu leiktíð en mistókst að koma liðinu upp á sínu fyrsta ári. Nú hefur hann hinsvegar náð ætlunarverki sínu og stýrir Víkingsliðinu í deild þeirra bestu á næstu leiktíð.

Karla lið Víkings hefur gengið illa að halda sæti sínu í Olís-deildinni og hefur gervigreindin meðal annars ekki náð að hjálpa Handkastinu að finna út hvenær Víkingur hélt sér uppi í efstu deild á Íslandi.

Aðalsteinn Eyjólfsson var gestur í Handkastinu á dögunum og þar var hann spurður út í stöðu félagsins og komandi verkefni.

,,Við í Víking erum á ákveðinni vegferð með allt starfið okkar og erum að reyna byggja þetta upp frá grunni en á sama tíma að reyna styrkja meistaraflokks starfið okkar. Okkar vinna hefur falist í því að efla yngri flokka starfið og búa til okkar eigin leikmenn. Við eigum orðið flotta árganga frá 2010 og niður og ætlum að fylgja þeim árgöngum upp í meistaraflokkinn. En á sama skapi er gríðarlega mikilvægt fyrir félagið á þessari vegferð að við náum að bæta við 3-4 leikmönnum og sækja áfram að stabílera okkar í Olís-deildinni til að krakkarnir sem eru að koma upp hjá okkur séu með fyrirmyndir og séu að stefna þangað," sagði Aðalsteinn sem gerir ekki ráð fyrir að leikmannahópur liðsins breytist mikið á milli tímabila.

,,Það verður engin kúvending á hugmyndafræðinni, við ætlum að halda áfram að byggja á ungum leikmönnum sem hafa ekki fengið tækifæri annarsstaðar og hafa komið til okkar til að bæta sig og fengið tækifæri. Þeir hafa unnið hörðum höndum og ég er mjög stoltur af strákunum hvernig þeir hafa hjálpað okkur að skapa ákveðinn æfingakúltúrinn og umgjörð í Virkinu. Við ætlum að halda áfram að veðja á þá sem veðjuðu á okkur fyrir tveimur árum og reyna bæta aðeins við hópinn."

En gerir hann ráð fyrir því að fá til sín erlenda leikmenn fyrir næstu leiktíð?

,,Það er mjög ólíklegt. Mér finnst það ekki skemmtilegt að setja stjórnarmenn og sjálfboðaliða á fullt í að safna peningum fyrir einhverjum þannig ævintýrum þegar það er til nóg af leikmönnum hérna heima á Íslandi. Við ætlum að reyna við íslenska stráka fyrst en maður skyldi aldrei útiloka neitt en það er ekki stefnan.”

Hann talaði um vegferð sem félagið væri í. Hann var beðinn um að útskýra það aðeins betur og segja frá þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað í félaginu undanfarin ár.

,,2021 þá fær Víkingur, Virkið (Safamýrina) með 170 iðkendur í félaginu en erum núna fimm árum seinna að detta í 600 iðkendur í yngri flokkunum hjá okkur. Elsti árangangurinn sem er ekki með færri en 14 iðkendum er núna að skila sér upp í yngsta ár í 3.flokki. Barna og unglingaráðið og aðalstjórn félagsins hefur lagst öll á eitt að laga umgjörðina í yngri flokkum og laga þjónustuna við fólkið í hverfinu og það er að skila sér í gríðarlegri aukningu auk góðri vinnu þjálfara hjá félaginu. Við erum að búa bæði til starf sem er afreksmiðað en huga einnig að samfélagslegum gildum þannig að ungir krakkar geta farið báðar leiðir. Þetta er það sem við erum að vinna að og erum núna að komast loksins á þann stað að fara skila karla megin leikmönnum beint inn í svokallaða afreksbrú sem er 3. og 4.flokkur og kvennastarfið er einu ári á eftir. Við erum síðan með haug af krökkum sem koma eftir þessum iðkendum. Við þurfum 1-3 ár til að klára þá vegferð að vera með breiðan grunn í öllum árgöngum félagsins.”

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top