Tvö Íslendingalið í undanúrslitum bikarsins í Portúgal
ADA

Stiven Tobar Valencia og félagar hans í Benfica komust í undanúrslit portúgölsku bikarkeppninnar í gærkvöldi eftir eins marks sigur á heimavelli gegn Póvoa 35-34 en Benfica var tveimur mörkum yfir í hálfleik 20-18.

Það hefur ekki gengið áfallalaust hjá Benfica að leika í bikarkeppninni á þessu tímabili líkt og Handkastið greindi frá á dögunum.

Bikarleik í Portúgal tvívegis frestað vegna vallaraðstæðna.

Ljóst er að Benfica mætir Águas Santas í undanúrslitum sem fer fram heima og að heiman 15. og 18.apríl. Í hinni viðureigninni mætast Marítimo Madeira og Sporting sem Sporting eru ríkjandi bikarmeistarar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top