Við heyrðum í Victori Mána Matthíassyni, línumanni Fjölnis og fengum hann aðeins til að tjá sig örstutt um síðasta leik í einvíginu á móti Stjörnunni og leikinn sem framundan er. Staðan er 1-1 í einvíginu í undanúrslitum umspilsins um laust sæti í Olís-deild karla á næstu leiktíð. Liðin mætast í oddaleik í Heklu-höllinni í Garðabæ á morgun klukkan 16:30 en sigurliðið úr einvíginu mætir Herði í úrslitum umspilsins. Victor Máni spilar mikilvægt hlutverk í liði Fjölnis sem línumaður og einnig sem sterkur varnarmaður. Hann er uppalinn í Haukum og var síðan aðeins á mála hjá Víking en hefur verið í Fjölni undanfarin ár og verið mikilvægur fyrir þá. ,,Við vorum virkilega vel stemmdir fyrir síðasta leik í Egilshöll og stemmingin í hópnum var mjög góð en við vissum líka að þetta yrði gríðarlega erfiður leikur. Við náðum ekki að klára dauðafærin sem við vorum að skapa okkur. Það einfaldlega má ekki á móti svona sterku liði eins og Stjörnunni. En við erum fullir tilhlökkunar fyrir næsta leik. Það verður ótrúlega gaman að fara inn í leik með hreinlega allt undir" sagði Victor Máni Matthíasson.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.