21. tap Tjörva og félaga í röð
Oppenweiler

HC Oppenweiler/Backnang tapaði í dag með átta mörkum gegn toppliði þýsku B-deildarinnar, Balingen 34-26 eftir að staðan hafi verið 19-13 Balingen í vil í hálfleik.

Tjörvi Týr Gíslason nýtti öll þrjú skot sín í leiknum en hann var þriðji markahæsti leikmaður Oppenweiler/Backnang í leiknum en Malte Dedering var markahæstur með ellefu mörk úr 21 skoti.

Um var að ræða 21. tap liðsins í röð í þýsku B-deildinni en liðið er á botni deildarinnar með tvö stig eftir 26 umferðir.

Átta umferðir eru eftir af deildarkeppninni en tvö neðstu lið þýsku B-deildarinnar falla niður í C-deild. Þrettán stig eru í Essen sem eru í 16.sæti deildarinnar með 15 stig en sextán stig eru í pottinum og því er liðið ekki enn fallið tölfræðilega.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top