8 mörk og 9 stoðsendingar í naumu tapi Rhein-Neckar Löwen í dag
Sævar Jónasson)

Selfyssingurinn Haukur Þrastarson átti virkilega flottan leik í naumu tapi Rhein-Neckar Löwen gegn Erlangen í Þýsku Bundesligunni í dag.

Erlangen vann leikinn 29-27 eftir að hafa verið undir 10-13 í hálfleik.

Haukur var markahæstur og með flestar stoðsendingar hjá Löwen. Skoraði 8 mörk og átti 9 stoðsendingar. Hann kom því að 17 mörkum Löwen af 27 mörkum sem gerir rúm 63%.

Rhein-Neckar Löwen situr í áttunda sæti með 31 stig en Erlangen er í þréttanda sæti með 19 stig.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top