Martin Nagy yfirgefur Helsingborg
Björgvin Franz Björgvinsson

Ungverski markvörðurinn, Martin Nagy sem gekk í raðir sænska úrvalsdeildarliðsins Helsingborg fyrir tímabilið verður ekki áfram í herbúðum félagsins. Þetta staðfesti sænska félagið á samfélagsmiðla síðu sinni á dögunum.

Hinn 27 ára Ungverji Martin Nagy gekk í raðir Helsingborg frá Pick Szeged en Martin Nagy lék með Val tímabilið 2020-2021 og lék með liðinu í Olís-deildinni og varð Íslandsmeistari með félaginu. Það tímabil myndaði hann markvarðarteymi með Einari Baldvini Baldvinssyni. Í kjölfarið gekk hann síðan til liðs við Íslendingalið Gummersbach undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar.

Þá lék hann einnig um tíma undir stjórn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar hjá Fredericia í Danmörku.

Helsingborg enduðu í 12.sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 17 stig og eru því í umspili um sæti í deildinni gegn Varberg en staðan er jöfn í einvíginu 1-1 en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja veru sína í deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top