Fjórir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í dag er 27.umferð lauk á sjálfan páskadag. Fyrsti leikur dagsins fór fram er Füchse Berlin tók á móti Blæ Hinriks og félögum í Leipzig. Berlin var í bílstjórasætinu allan leikinn þar sem þeir sóttu hart á lið Leipzig. Hálfleikstölur voru 20-10 og lokatölur urðu 39-26. Blær Hinriks skoraði 1 mark og gaf 2 stoðsendingar fyrir Leipzig. Seinni leikur dagsins fór fram Andri Rúnars og félagar í Erlangan tóku á móti Hauk Þrastar og félögum í Rhein-Neckar Löwen. Fyrri hálfleikur var jafn þar sem bæði lið sóttu hart á mark hvorannara. Hálfleikstölur voru 10-13 Löwen í vil. Seinni hálfleikur þróaðist út í það að hægt og bítandi tók Erlangan forystuna með góðri spilamennsku. Lokatölur 29-27. Haukar Þrastar skoraði 8 mörk og gaf 9 stoðsendingar fyrir Löwen en Andri Már skoraði skoraði 5 mörk fyrir Erlangan. Þriðji leikur dagsins fór fram er Minden tók á móti Hamburg. Leikurinn var stál í stál allan leikinn þar sem varnarleikur var góður og sömuleiðis markvarsla. Úrslitin réðust á síðustu mínútum leiksins er Minden skoraði til að minnka muninn í eitt mark er mínúta lifði leik. Lokatölur urðu 29-30 fyrir Hamburg er staðan í hálfleik var 12-13. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Frederik Bo Andersen í liði Hamburg með 8 mörk. Fjórði og síðasti leikur dagsins fór fram er Ýmir Örn og félagar í Göppingen tóku á móti íslendingaliði Magdeburg. Göppingen byrjaði leikinn af miklum krafti og voru óvænt einu marki yfir í hálfleik þar sem staðan var 14-13. Í seinni hálfleik var sami kraftur í Göppingen en er leið á leikinn náðu Magdeburg völdunu og unnu 23-27 sigur. Gísli Þorgeir skoraði 2 mörk og gaf 7 stoðsendingar, Ómar Ingi skoraði 2 mörk og gaf 4 stoðsendingar og Elvar Örn skoraði 1 mark. Úrslit dagsins: Füchse Berlin-Leipzig 39-26 Erlangan-Rhein-Neckar Löwen 29-27 Minden-Hamburg 29-30 Göppingen-Magdeburg 23-27

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.