Andri Snær Stefánsson þjálfari KA var ekkert að skafa af því í viðtali við Handkastið eftir átján marka tap gegn Val í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í kvöld. Valur vann 39-21 eftir að hafa verið 17-9 yfir í hálfleik. ,,Við vorum alls ekki góðir í dag, það er óhætt að segja það. Það þarf engan sérfræðing til að greina það, við vorum hræðilegir sóknarlega framan af leik og allan fyrri hálfleikinn erum við í basli. Valsmenn eru rosalega öflugir að refsa fyrir mistök og við gerðum of mörg mistök sóknarlega í fyrri hálfleik." ,,Varnarleikurinn var fínn en flæðið á boltanum var afleitt framan af. Við klúðrum meiri segja 6 á móti 4 og síðan þegar við förum að fá stöðurnar sem við vildum þá brennum við færum. Bjöggi var í banastuði, ég hef ekki séð hann svona góðan síðan árið 2009. Þetta var vont sóknarlega en ég er mjög ósáttur með seinni hálfleikinn, hvernig við byrjum hann. Það er sem betur fer annar leikur strax á fimmtudaginn." Er þetta lélegasta frammistaða sem hann hefur séð frá sínu liði í vetur? ,,Það er engin spurning, það er vont að fá svona frammistöðu í úrslitakeppninni en það er heldur betur búið að jarðtengja okkur og Valsmenn voru frábærir í dag, við tökum ekkert af þeim og óskum þeim til hamingju með þennan sigur. Við ætlum ekkert að flækja þetta, við ætlum að hlaða okkar núna og við vitum hvar þetta liggur, þetta liggur hjá okkur og við þurfum að hafa trú og sjálfstraust til að leysa þetta."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.