Átti ekki von á 18 marka sigri
Sævar Jónasson

Deildarmeistarar Vals unnu átján marka sigur á KA á heimavelli í kvöld, 39-21 í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn.

Ágúst Jóhannsson þjálfari Vals var að vonum ánægður með sigurinn í kvöld í viðtali við Handkastið eftir leik.

,,Frammistaðan var mjög góð. Ég var ánægður með varnarleikinn, hraðaupphlaupin og uppstilltan sóknarleik stóran hluta leiksins. Við lékum vel í dag og það var góður liðsheildarbragur á þessu hjá okkur. Allir sem komu inn skiluðu góðu verki og þetta var sanngjarn sigur."

,,Ég get ekki sagt að ég hafi átt von á 18 marka sigri. Við berum mikla virðingu fyrir KA-mönnum, þeir eru með gríðarlega vel mannað lið og mikla reynslu í sínu liði. Ég bjóst ekki við þessu en að því sögðu þá hittum við á mjög góðan leik og þeir ekki á sínum besta degi. Nú kemur dagurinn á morgun og við þurfum að undirbúa okkur vel fyrir erfiðan leik fyrir norðan á fimmtudaginn. Við þurfum að eiga ekki síðri leik þar til að vinna KA þar."

Liðin mætast aftur á fimmtudag í leik tvö í einvíginu.

,,Ég geri ráð fyrir að þar verði þetta járn í járn. Við þurfum að skoða þennan leik og fara vel yfir þetta og ég held að þeir geri það líka. Vonandi náum við að vinna þann leik en ég veit að það verður gríðarlega erfitt."

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top