Gummersbach hefur verið á miklu flugi á tímabilinu undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar og árangurinn vakið mikla athygli. Liðið er nú í harðri samkeppni um sæti í Meistaradeild Evrópu og hefur sýnt stöðugleika með því að vinna níu leiki í röð en liðið hefur unnið alla leiki sína á nýju ári. Síðasta tap liðsins kom um miðjan desember á síðasta ári. Liðið situr í 4.sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 39 stig. Landsliðsmennirnir Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson leika stórt hlutverk með liðinu. Heiner Brand sem lék á sínum tíma og þjálfaði Gummersbach, fylgist grannt með framvindu mála hjá félaginu. Heiner Brand var einnig þjálfari þýska landsliðsins á sínum tíma. Hann er mjög hrifinn af því sem hann sér og segir: „Þetta er besta lið sem Gummersbach hefur verið með í nokkra áratugi,“ í samtali við DPA. Brand lætur sig sjaldan vanta á heimaleiki og leggur sérstaka áherslu á að vera viðstaddur þá. „Þetta eru einu leikirnir sem ég passa upp á að dagskrá mín sé laus í kringum. Ég er orðinn miku meiri stuðningsmaður liðsins undanfarin ár.“ Heiner Brand þjálfaði liðið á árunum 1987-1991 og aftur 1994-1996. Hann þjálfaði þýska landsliðið á árunum 1997-2011. Frá því Guðjón Valur tók við liðinu árið 2020 hefur þróunin verið afar jákvæð. Með markvissri uppbyggingu og stuðningi frá stjórn félagsins hefur félaginu tekist að koma Gummersbach aftur upp í efstu deild og gera það samkeppnishæft á ný. Nú er raunhæfur möguleiki á að liðið komist í Meistaradeild Evrópu í fyrsta skipti í um tvo áratugi. Árið 2019 varð félagið fyrir miklu áfalli þegar það féll úr efstu deild, en endurreisnin lét ekki á sér standa eftir að Guðjón Valur tók við. Þremur árum síðar var liðið komið aftur upp og hefur síðan fest sig í sessi meðal sterkari liða deildarinnar. Í umfjöllun Handball World er þetta orðað svo: „Þremur árum frá fallinu árið 2019 sneri Gummersbach aftur í efstu deild, ekki síst vegna Guðjóns Vals og Christoph Schundler, yfirmanni íþróttamála hjá félaginu." Garðar Ingi Sindrason leikmaður FH gengur í raðir félagsins í sumar og það verður fróðlegt að sjá í hvaða hlutverki hann verður hjá Guðjóni Val fyrst um sinn. Þá ríkir mikil eftirvænting fyrir komu spænska landsliðsmannsins, Alex Dujshebaev sem gengur í raðir félagsins í sumar frá Industria Kielce. Stuðningur við liðið hefur aukist verulega samhliða góðum árangri. Heimaleikir Gummersbach hafa ítrekað selst upp og hefur það gerst fjörutíu og tvisvar sinnum í röð, en höllin tekur um 4.100 áhorfendur. Brand segir stemninguna einstaka: „Þessi áhugi er ekki eðlilegur,“ og bætir við: „Það er gífurleg stemning í Gummersbach. Þegar að félagið var að ganga í gegnum sinn sigursælasta tíma á árunum í kringum 1970 í sinni tvö þúsund manna höll seldist upp á leiki kannski þrisvar sinnum.“ Fram undan eru breytingar á Meistaradeild Evrópu þar sem liðum verður fjölgað úr sextán í tuttugu og fjögur. Þrjú lið úr þýsku úrvalsdeildinni munu fá þátttökurétt, sem þýðir að lið sem enda í öðru eða þriðja sæti gætu tryggt sér sæti í keppninni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.