Dagur Árni gæti snúið aftur í kvöld
Sævar Jónasson

Dagur Árni Heimisson leikmaður Vals gæti snúið aftur á völlinn í kvöld eftir langa fjarveru vegna meiðsla en Valur tekur á móti uppeldisfélagi Dags, KA í fyrsta leik undanúrslita Íslandsmótsins í kvöld klukkan 18:30 í N1-höllinni að Hlíðarenda.

Dagur Árni hefur ekkert leikið með Val eftir áramót en hann var síðast í leikmannahópi Vals í lokaleik liðsins fyrir áramót er liðið vann Selfoss á útivelli, 15.desember 40-43. Dagur Árni skoraði þrjú mörk í þeim leik.

Fer Dagur Árni heim í sumar?

Dagur Árni hefur verið að glíma við hnémeiðsli frá því um síðasta sumar en hann lék þó með Valsliðinu fyrir áramót.

,,Ég hef verið að ströggla með þetta í vetur og vonaðist eftir að þetta myndi lagast, en það hefur ekki gert það. Vorum að reyna að álagsstýra þessu fyrir áramót og nýta hvíldina núna í janúar, en staðan á þessu var ekki orðin nægjanlega góð. Ég er í góðum höndum hjá toppsjúkraþjálfurum þannig ég hlakka til að spila 100% og vonandi verður það sem fyrst," sagði Dagur Árni í samtali við Handkastið í byrjun febrúar.

Í samtali við Handkastið um helgina sagði Dagur Árni að hann væri allur að koma til og væri byrjaður að æfa með Valsliðinu. Hann sagði að ákvörðun um þátttöku hans í leiknum gegn KA í kvöld yrði tekin á leikdegi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top