
Tyrkneska félagið, Bursa Nilufer Belediyespor er úr leik í Evrópubikarnum eftir tap gegn ungverska liðinu, Tatabanya í 8-liða úrslitum keppninnar um helgina. Bursa Nilüfer sló út FH í 2.umferð keppninnar í október með þremur mörkum samtals, 60-57 eftir að hafa unnið fyrri leik liðanna með átta mörkum 31-23. Báðir leikir liðanna fóru fram í Tyrkalandi. Bursa Nilufer og Tatabanya gerðu jafntefli í fyrri leik liðanna í Ungverjalandi um síðustu helgi, 31-31 og mættust í Tyrklandi um helgina þar sem ungverska liðið hafði betur 37-35 og fór því áfram samanlagt 68-66. Ljóst er að Tatabanya mætir Izvidac frá Bosníu í undanúrslitum en Izvidac sló út Hauka í 8-liða úrslitum keppninnar á síðustu leiktíð. Þar tapaði liðið hinsvegar gegn AEK Aþenu í undanúrslitum. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Celje frá Slóveníu og Ohrid frá Norður-Makedóníu en Celje sló út Buzau frá Rúmeníu í 8-liða úrslitunum á meðan Ohrid vann Olympiacos með sex marka mun. Valur vann Evrópubikarinn fyrir tveimur leiktíðum en FH var eina íslenska liðið sem tók þátt í keppninni í ár en tvö íslensk lið tóku þátt í Evrópudeildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.