Flugi landsliðsins til Færeyja aflýst
Ina FASSBENDER / AFP)

Ekkert verður að því að íslenska kvennalandsliðið fljúgi beint til Færeyja í dag en búið er að aflýsa fluginu til Vogaflugvallar í Færeyjum samkvæmt heimasíðu Keflavíkurflugvallar en það er Handbolti.is sem greinir frá þessu.

Stormur gengur nú yfir allt landið og veðrið mjög slæmt á sunnanverðu landinu sem mun standa yfir í allan dag.

Þegar þessi frétt er skrifuð liggur ekki fyrir hvort landsliðið muni fara í öðru flugi til Færeyja t.d. í gegnum Kaupmannahöfn.

Íslenska landsliðið á mikilvægan leik gegn því Færeyska á miðvikudagskvöldið í undankeppni Evrópumótsins í handbolta.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top