Georgíski landsliðsmaðurinn verður áfram í KA
Egill Bjarni Friðjónsson

Georgíski landsliðsmaðurinn, Giorgi Dikhaminjia meiddist í landsleik með Georgíu í lok mars mánaðar en Handkastið greindi frá því í kjölfarið að tímabili hans með KA væri lokið.

Handkastið hafði samband við Giorgi á dögunum sem er staddur þessa dagana heima í Georgíu. Í samtalinu staðfesti Georgíumaðurinn að tímabilinu hjá honum væri að öllum líkindum lokið.

,,Ég kem aftur til Akureyrar í vikunni og held áfram með endurhæfinguna þar. Það lítur út fyrir að ég sé búinn að spila minn síðasta leik á þessu tímabili. En ef allt gengur vel þá byrja ég næsta tímabil 100%," sagði Giorgi sem staðfesti á sama tíma að hann yrði áfram í herbúðum KA á næsta tímabili enda hafi hann gert tveggja ára samning við KA er hann gekk til liðs við félagið síðasta sumar.

Giorgi Dikhaminjia gekk í raðir KA frá Póllandi fyrir tímabilið og skoraði 109 mörk fyrir liðið í Olís-deildinni en KA endaði í 5.sæti Olís-deildarinnar. KA sló út ÍBV 2-0 í 8-liða úrslitum og mætir Val í undanúrslitum.

Einvígi Vals og KA hefst í kvöld klukkan 18:30 en einvígi FH og Hauka hefst annað kvöld.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top