ÍR þarf að skoða hvað fór úrskeiðis
Sævar Jónasson)

Kvennalið ÍR datt út úr úrslitakeppninni Olís deildar kvenna á miðvikudaginn í síðustu viku eftir 2-0 tap í einvíginu gegn Fram.

ÍR-ingar höfðu komið mikið á óvart í vetur og unnu til að mynda Valskonur nokkuð óvænt á þeirra eigin heimavelli í nóvember áður en liðin fóru í landsliðspásu vegna stórmóts hjá Stelpunum Okkar.

Strákarnir ræddu gengi ÍR í nýjasta þætti Handkasins og voru sammála um hvernig tímabilið hjá ÍR endaði væru algjör vonbrigði. Styrmir sagði ekki hafa neinar skýringar á því afhverju tímabilið endaði svona en sagði að ÍR hefði verið í vandræðum með Fram í allan vetur. ,,Það er ótrúlega fyndið hvernig lið match-a mis vel upp gegn hvert öðru, ÍR var til að mynda í vandræðum með Fram í allan vetur meðan lið eins og Stjarnan stóð í Fram og ÍR voru síðan í engu veseni með Stjörnuna."

Styrmir segist vera illa svekktur að hafa ekki fengið oddaleik í þessu einvígi, lið eins og ÍR eigi ekki að tapa 2-0 gegn Fram miðað við gengi liðanna í vetur.

Einar Ingi sagði að ÍR þyrfti nú að setjast niður og rýna til gagns hvað er væri sem gerðist hjá liðinu undir loka tímabilsins. Grétar Áki þjálfari liðsins sagði í viðtali eftir leik að hann ætlaði ekkert á skíði um helgina heldur ætlaði hann að greina það strax hvað fór úrskeiðis meðan hausinn væri ferskur.

Þrír leikmenn ÍR liðsins hafa verið í kringum íslenska landsliðið og velti Einar Ingi því fyrir sér hvort það hefði mögulega verið að trufla þær. ,,Landsliðssætið virðist vera mjög þungt hjá allavegna þrem leikmönnum þarna og það er eitthvað sem virðist ekki ná að stilla af sem leikmenn komandi inn í tímabilið eftir þetta stórmót."

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top