KA menn komnir í bæinn – Voru fastir á Kjalarnesi
Egill Bjarni Friðjónsson

Undanúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn hefjast í kvöld klukkan 18:30 þegar deildarmeistararnir í Val taka á móti KA í Valsheimilinu. Leikurinn verður sýndur í beinni í Handboltapassanum.

Þrátt fyrir veðurviðvaranir á landinu í dag eru KA menn komnir í höfuðborgina en liðið lagði snemma af stað frá Akureyri í morgun. Var liðið fast á Kjalarnesi í um 40 mínútur þar sem veginum var lokað um tíma en liðið er hinsvegar komið í bæinn og er statt í Mosfellsbæ núna þar sem liðið tekur létta æfingu fyrir átökin í kvöld.

STYMMI SPÁIR Í LEIK DAGSINS

Veðbankar spá sigri Vals í kvöld en stuðullinn á sigur Vals á veðmálasíðunni, Coolbet er 1.53 en stuðullinn á KA sigur er 3.40. Liðin mættust tvívegis í Olís-deildinni í vetur þar sem bæði lið unnu sitthvorar fimm marka sigur. Valur vann á heimavelli í febrúar 36-31 en KA vann sinn heimaleik um miðjan október 33-28.

Það verða engir Valsarar á flautunni í kvöld heldur, Framarnir Bjarki Bóasson og Gunnar Óli Gústafsson. Kristján Halldórsson verður eftirlitsmaður.

DAGUR ÁRNI GÆTI SNÚIÐ AFTUR Á VÖLLINN Í KVÖLD

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top