Norðurlöndin: Holstebro með tap í fyrsta leik í úrslitakeppni
(Egill Bjarni Friðjónsson)

Einn leikur fór fram í Danmörku í kvöld en Mors-Thy tók á móti Íslendingunum í TTH Holstebro á heimavelli sínum í kvöld. Holstebro tók með sér eitt stig inn í úrslitakeppni á meðan Mors-Thy voru stigalausir.

Úr varð hörkuleikur þar sem heimamenn reyndust sterkari á lokakaflanum og unnu tveggja marka sigur, 33-31. Jóhannes Berg Andrason skoraði tvö mörk úr tveimur skotum og gaf tvær stoðsendingar að auki fyrir gestina. Mors-Thy hoppa upp í annað sæti riðilsins með tvö stig en Skanderborg eru á toppnum með fjögur stig. Holstebro koma á eftir þessum tveimur með eitt stig og á botninum með núll stig eru Bjerringbro-Silkeborg.

Í hinum riðlinum fór fram einn leikur í gær þar sem Skjern tók á móti GOG, þar reyndust gestirnir sterkari og unnu gríðarlega öflugan og nauman sigur, 34-35. GOG á toppi riðilsins með þrjú stig, Fredericia og Álaborg með tvö eftir óvænta sigur Fredericia og Skjern á botninum með núll stig.

Úrslit kvöldsins:

Mors-Thy 33-31 TTH Holstebro

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top