
Sagt er frá því á samfélagsmiðlasíðunni, Handballtransfer að norski landsliðsmaðurinn, Sebastian Barthold leikmaður Magdeburg sé á leið í dönsku úrvalsdeildina og sé á leið til Mors-Thy. Sebastian Barthold gekk í raðir Magdeburgar síðasta sumar vegna meiðsla í herbúðum félagsins en hann hafði leikið með Álaborg frá 2017. Nú er hann hinsvegar orðaður við Mors-Thy en á Handballtransfer er talað um að ef félagaskiptin ganga í gegn yrðu þetta stærstu félagaskipti í sögu félagsins. Handkastið vill nú meina að félagaskipti Agnars Smára Jónssonar til Mors-Thy á sínum tíma sé nú ekkert síðri. Barthold sem er fæddur árið 1991 verður 35 ára síðar á þessu ári en hann er uppalinn hjá Haslum. Hann lék með Haslum í Noregi á árunum 2010-2017 áður en hann gekk í raðir Álaborgar. Mors-Thy endaði í 6.sæti dönsku úrvalsdeildarinnar á þessari leiktíð. Magnus Norlyk vinstri hornamaður liðsins gengur í raðir Álaborgar í sumar og er Barthold sagður eiga fylla hans skarð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.