
Stymmi Klippari mun það sem eftir lifir tímabils spá í leiki dagsins bæði í úrslitakeppni og umspili karla og kvenna hér á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvernig hann spáir leikjum dagins Valur - KA (Mánudag 18:30) / Sigurvegari: Valur Fyrsta leikur í undanúrslitaeinvígi þessara liða. KA þurftu að breyta ferðalagi sínu vegna stormsins sem gengur yfir landið í dag sem gæti truflað undirbúning liðsins aðeins. Bæði lið unnu sitthvorn leikinn innbyrðis í vetur og nýttu heimavöllinn vel til þess. Ég held að Valur muni eiga fyrsta höggið í þessari viðureign og nýta reynsluna sem liðið hefur í svona stórum leikjum og komast í 1-0 í einvíginu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.