Færeyingurinn, Dánjal Ragnarsson kom til Fram í byrjun ágúst á síðasta ári á láni frá færeyska félaginu Neistanum. Gerði Dánjal samning við Fram út tímabilið sem lauk hjá Fram í síðustu viku. Samkvæmt heimildum Handkastsins er vilji bæði Fram og Dánjals að framlengja dvöl Færeyingsins hjá Fram en Dánjal sagði í samtali við Handkastið að hans mál myndu skýrast á næstu dögum. Dánjal þekkir vel til íslenska boltans en hann lék á sínum tíma með ÍBV tímabilin 2021/2022, 2022/2023 og fyrri hluta tímabilsins 2023/2024. Dánjal endaði sem næst markahæsti leikmaður Fram á tímabilinu með 78 mörk í 19 leikjum en Ívar Logi Styrmisson var markahæstur í liði Fram á tímabilinu með 121 mörk í 23 leikjum. Dánjal er einn af sex Færeyingum sem léku í Olís-deild karla á þessari leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.