

Landsliðsmaðurinn, Viggó Kristjánsson leikmaður HC Erlangen í þýsku úrvalsdeildinni var kynntur sem leikmaður Flensburg frá og með sumrinu 2027, annan í páskum. Viggó hefur verið orðaður við Flensburg síðustu vikur en hann sagði í samtali við Handkastið að viðræður við Flensburg hafi hafist í janúar eftir að félagið hafi haft samband við umboðsmann Viggós í byrjun janúar. ,,Þetta er staðfesting á því hvað maður hefur verið að gera undanfarin ár. Maður hefur stefnt að því í langan tíma að fara í félag sem er í toppbaráttu í þýsku Bundesligunni og það er gaman að það sé loks að verða að veruleika núna. Það er gaman að fara til liðs sem er að berjast um alla titla sem er í boði og spila í Evrópukeppni á hverju tímabili," sagði Viggó í samtali við Handkastið en Viggó semur við Flensburg til tveggja ára eða til ársins 2029. Einhver umræða hefur verið uppi um það að Flensburg gæti mögulega keypt Viggó frá HC Erlangen og þar með myndi hann ganga í raðir Flensburg strax í sumar. ,,Það hefur eitthvað verið rætt um það en eins og ég hef sagt þá er ég með samning við Erlangen til 2027 og ef það á að verða að því að ég fari strax í sumar þá þurfa liðin að ná saman. Það hefur ekkert verið í mínum höndum að vera eitthvað að pæla í því," sagði Viggó. Flensburg varð síðast þýskur meistari tímabilið 2018/2019 en þá varð liðið meistari annað árið í röð. Fyrir það varð liðið þýskur meistari tímabilið 2003/2004. Á síðustu leiktíð endaði liðið í 5.sæti deildarinnar en það er lélegasti árangur liðsins frá árinu 2010/2011 þegar liðið endaði í 6.sæti deildarinnar. Annars hefur liðið alltaf verið í topp fjórum í deildinni. ,,Það verða einhverjar breytingar á liðinu á næstu árum. Johannes Golla er að fara til Melsungen í sumar og Lukas Jörgensen er að fara til Veszprém. Simon Pytlick fer síðan til Fuchse Berlín en ég kem til þeirra sumarið 2027 og Aymeric Minne kemur frá Nantes í sumar. Ég veit svosem ekkert hvað félagið er að gera varðandi frekari styrkingar en þetta hefur verið eitt besta félag í Þýskalandi síðustu 25 ár og það er eitt af því sem þeir notuðu til að selja mér þessa hugmynd. Þeir eru alltaf í baráttunni um að vinna alla titla. Þó það séu alltaf einhverjar breytingar og þeir séu að missa sterka leikmenn þá fá þeir sterka leikmenn í staðin. Þeir ítrekuðu það við mig að við verðum með lið sem verður að keppa um titla á næstu árum," sagði Viggó að lokum í samtali við Handkastið. Flensburg er um þessar mundir í 2.sæti þýsku bundesliegunnar með 43 stig, stigi meira en Fuchse Berlín sem er í 3.sæti. Magdeburg er á toppi deildarinnar með 50 stig þegar sjö umferðir eru eftir. Þá er Flensburg einnig í baráttunni í Evrópudeildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.