Samkvæmt heimildum Handkastsins gæti örvhenta skyttan, Lena Margrét Valdimarsdóttir verið á heimleið eftir eins árs dvöl í Svíþjóð. Er Lena Margrét orðuð við Val en hún gekk í raðir sænska úrvalsdeildarliðsins Skara síðasta sumar frá Fram. Lena Margrét gerði tveggja ára samning við Skara síðasta sumar en núna er orðrómur uppi um að hún sé á heimleið og leiki í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð. Lena Margrét yrði þá fjórði leikmaðurinn sem er að koma heim úr atvinnumennsku í sumar og ganga í raðir liðs í Olís-deildinni en áður hefur verið tilkynnt að Andrea Jacobsen gangi í raðir ÍBV, Aldís Ásta Heimisdóttir gengur í raðir KA/Þórs og Berta Rut Harðardóttir hefur samið við uppeldisfélag sitt Hauka. Lena Margrét skoraði 78 mörk í 21 leik fyrir Fram í Olís-deildinni á síðustu leiktíð. Skara endaði í 3.sæti sænsku úrvalsdeildarinnar á þessari leiktíð þá er liðið 2-0 yfir í einvígi sínu gegn Vasteras í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar. Er Lena Margrét sögð eiga að fylla skarð Theu Imani Sturludóttur sem er á leið út í atvinnumennsku samkvæmt heimildum Handkastsins. Thea Imani hefur samið við félag í Rúmeníu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.