Erum á leið í hörku leik við gott lið
Ina FASSBENDER / AFP

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta náði að komast til Færeyja í gær þrátt fyrir að upphaflegt flug þeirra hefði verið aflýst. Um tíma ríkti þó óvissa um ferðalagið og hafði landsliðsþjálfarinn, Arnar Pétursson áhyggjur af því að undirbúningur fyrir komandi leik yrði ekki nægjanlegur.

Leikurinn milli Færeyja og Íslands fer fram annað kvöld klukkan 18:00 og verður í beinni útsendingu á RÚV 2. Upphitun hefst í Stofunni klukkan 17:35.

Flugi Icelandair til Færeyja var aflýst vegna veðurs í gær en það kom ekki í veg fyrir að liðið kæmist á leiðarenda sama dag. Ísland á framundan mikilvægan leik gegn færeyska landsliðinu í undankeppni Evrópumótsins sem fer fram á morgun.

Landsliðsþjálfarinn Arnar Pétursson útskýrði stöðuna í viðtali við RÚV í dag.

,,Fluginu hjá Icelandair í gærmorgun var auðvitað bara frestað vegna veðurs. En sem betur fer flaug Atlantic Airways yfir með okkur, þannig við vorum komin yfir einhverjum tveimur klukkutímum á eftir áætlun. En þetta reddaðist allt saman,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta þegar RÚV ræddi við hann í hádeginu.

Hann viðurkennir að hann hafi haft miklar áhyggjur af þessu og var ekkert alltof bjartsýnn á að liðið kæmist til Færeyja í gær. Hann segist hafa verið farinn að sjá fram á það að gista eina nótt í Reykjanesbæ. ,,En sem betur fer reddaðist þetta og það fer vel um okkur í Færeyjum."

Ísland situr á botni riðilsins fyrir síðustu tvær umferðirnar með tvö stig en Færeyjar og Portúgal eru með fjögur stig. Ísland mætir Færeyjum annað kvöld og fær síðan Portúgal í heimsókn á Ásvelli á sunnudaginn næstkomandi. Uppselt er á þann leik.

Ísland tapaði með minnsta mun gegn Færeyjum á heimavelli fyrir áramót en vann síðan Færeyjar á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi stuttu síðar. Ef Færeyjar vinna leikinn á morgun þarf Ísland að treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjum, meðal annars að Svartfjallaland leggi Portúgal, og svo vinna sjálft gegn Portúgal á Ásvöllum í Hafnarfirði á sunnudaginn.

,,Við gerum okkur alveg grein fyrir því að við erum á leið í hörku leik við gott lið. En við þurfum eins og alltaf að spá í því hvað við erum að gera og horfa í okkar frammistöðu, og það er svona það sem við erum að búa okkur undir,“ sagði Arnar Pétursson við RÚV í dag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top