
4 leikir fóru fram í Evrópudeildinni í kvöld. Um síðari viðureignirnar í umspili um sæti í 8-liða úrslitum var að ræða. 5 íslendingar voru í eldlínunni í kvöld. SG Flensburg - Skanderborg 33-33 (16-13) Elverum - Montpellier 35-31 (18-19) MT Melsungen - Fredericia 35-26 (17-12) RK Nexe - Kristianstad 32-27 (14-15)
Kristján Örn Kristjánsson (Donni) og liðsfélagar hans í Skanderborg eru úr leik þrátt fyrir að hafa náð í gott jafntefli á útivelli gegn Flensburg. Flensburg unnu fyrri leikinn í Danmörku og fara áfram eftir samanlagðan 71-65 sigur í einvíginu. Donni átti stórleik fyrir Skanderborg og var markahæstur með 11 mörk. Flensburg munu mæta lærisveinum Heiðmars Felixsonar í Hannover í 8-liða úrslitunum.
Tryggvi Þórisson og félagar í Elverum unnu frækinn sigur á Montpellier en töpuðu einvíginu samanlagt 67-59. Brekkan eftir 12 marka tap í fyrri leiknum reyndist of brött. Tryggvi komst ekki á blað í leiknum. Montpellier munu mæta HC Vardar í 8-liða úrslitunum.
Melsungen voru með bakið upp við vegg eftir að hafa tapað stórt í fyrri leiknum. Þeir sýndu hins vegar styrk sinn og unnu einvígið samanlagt 64-61. Reynir Þór Stefánsson og Arnar Freyr Arnarsson spiluðu báðir í kvöld en komust ekki á blað. Melsungen munu mæta FC Porto í 8-liða úrslitunum.
Einar Bragi Aðalsteinsson og félagar í Kristianstad eru úr leik eftir annað tap gegn RK Nexe og töpuðu þeir einvíginu samanlagt 68-61. Einar Bragi var markahæstur fyrir Kristianstad ásamt Axel Mansson með 5 mörk. RK Nexe munu mæta THW Kiel í 8-liða úrslitunum

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.